Margrét Lára: Vonast til að vera í byrjunarliðinu Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 18. september 2012 22:30 mynd/óskaró
Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar í íslenska kvennalandsliðinu verða í sviðsljósinu á morgun þegar liðið mætir Noregi á Ullevaal-leikvanginum í Osló en þetta er lokaleikur liðanna í undankeppni EM og hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar. Margrét Lára var fyrst ekki í hópnum hjá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni vegna meiðsla en kom svo inn í hópinn í vikunni fyrir leikinn við Norður-Íra. Margrét Lára kom inn af bekknum á mótim Norður-Írum en vonast til þess að byrja annað kvöld. „Staðan á mér er eins góð og hún getur verið. Ég er því bara klár í verkefnið á morgun og ég vonast til að vera í byrjunarliðinu. Við sjáum til hvað Siggi gerir í kvöld en ég vona vissulega að ég verð þess heiðurs aðhljótandi að fá að spila þennan mikilvæga leik," sagði Margrét Lára fyrir lokaæfingu liðsins í dag. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari mun tilkynna stelpunum byrjunarliðið sitt í kvöld en hann er hættur að gefa það út daginn fyrir leik og því kemur það ekki opinberlega í ljós fyrr en á morgun hvort Margrét Lára fái að byrja inn á. Íslenska liðið hefur spilað marga mikilvæga leiki á síðustu árum og Margrét Lára segir að reynslan hjálpi til en að það þurfi miklu meira til. „Við erum komnar með reynslu en hún fer ekkert alla leið með okkur á morgun. Við þurfum að spila vel, vera þéttar og spila okkar leik. Það er komin mikil tilhlökkun í hópinn og við getum ekki beðið eftir að leikurinn verði flautaður á," sagði Margrét Lára. Íslenska liðið náði upp góðri einbeitingu fyrir leikinn á móti Norður-Írlandi og kláraði hann með öruggum og sannfærandi 2-0 sigri „Við höfum lært af þeim mistökum að vera hugsa eitthvað lengra en næsta leik. Það er alltaf bara næsti leikur sem skiptir öllu máli og nú er keppnin bara að vera búin. Þetta er seinasti leikurinn og við höfum enga ástæðu til að vera að spara okkur á morgun," sagði Margrét Lára og bætti við: „Við kláruðum leikinn við Norður-Írland vel og héldum líka markinu hreinu sem var mjög mikilvægt upp á þetta verkefni. Við tökum það sjálfstraust með okkur inn í þennan leik og vonandi náum við að gera okkur sjálfar stoltar á morgun og þjóðina með," sagði Margrét Lára.
Fótbolti Mest lesið Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Sport Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Enski boltinn Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Fótbolti Eins leiks bann og sekt fyrir hnefahöggið Körfubolti „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Handbolti Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Fótbolti Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Heppnin með Bayern á leið í langþráð undanúrslit Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki Sverrir heimsótti óvinnandi vígi Viktor fór illa með færin en fagnaði sigri gegn Ísaki Sjö marka skellur hjá Blikum í Svíþjóð City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Hörður Björgvin fiskaði rautt en féll úr leik í bikarnum „Þetta er allt annað dæmi“ Atvinnulaus Jóhann kallaður í landsliðið Íslenska deildin byrjar langsíðust Hætti við að panta flug til London og samdi í staðinn til 2028 Frank rekinn frá Tottenham Mætt í fyrsta sinn til Evrópu og klár í erfiða áskorun með Blikum í dag Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Mögulegur framtíðarstjóri Manchester United missir starfið Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tómas hetjan á dramatískan hátt í Edinborgarslagnum Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Stórsér á Jóni Degi eftir fyrstu dagana í Brann Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sjá meira