Þjálfari Noregs: Þessi leikur verður stríð Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 19. september 2012 11:00
Eli Landsem, þjálfari norska kvennalandsliðsins, hefur náð að rífa liðið upp eftir erfiða byrjun í undankeppni Evrópumótsins og hún tjáði sig um komandi leik við Ísland inn á heimasíðu norska sambandsins en Noregur og Ísland mætast á Ullevaal leikvanginum. Þetta er lokaleikur liðanna í undankeppni EM og hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar en íslenska liðinu nægir jafntefli til að koma á annað Evrópumótið í röð. Norska liðið tapaði tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum í riðlinum en hefur nú unnið alla fjóra leiki sína á þessu ári, á móti Búlgaríu (3-0 og 11-0), Ungverjalandi (5-0) og Belgíu (3-2). Sigurinn á Belgíu tryggði liðinu öruggt sæti í umspilinu og úrslitaleik við Ísland um sæti í lokakeppninni. „Leikurinn á móti Íslandi verður allt annar fóboltaleikur en sá á móti Belgíu. Íslenska liðið er mjög „norskt" í sínum leik, spilar beinskeyttan bolta og setur pressu á boltann. Íslensku stelpurnar hafa líka þetta kæruleysishugarfar líkt og karlalandsliðið þeirra. Þessi leikur verður stríð og við verðum að passa að þær nái ekki að spila sinn leik," sagði Eli Landsem. „Við ætlum annars að einbeita okkur að okkar leik en ég ætla ekki að segja meira um það. Fullt af fólki í kringum íslenska liðið kann norsku og fylgjast vel með norsku fjölmiðlunum," sagði Landsem. „Við erum búin að skoða íslenska liðið vel og þekkjum þær vel. Við ætlum að vinna þennan leik en þurfum að vera markvissar í okkar leik til þess að ná því. Það er gott að vera búin að tryggja okkur sæti í umspilinu þannig að við höfum allt að vinna í þessum leik," sagði Landsem. Eli Landsem hefur þjálfað norska landsliðið frá árinu 2009 og stýrt liðinu tvisvar á móti Íslandi. Noregur vann 3-2 sigur í Algarve-bikarnum 2009 en íslensku stelpurnar unnu síðan 3-1 sigur í fyrri leik liðanna í undankeppni EM.
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir HK lagði tíu Þróttara og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Sjá meira