Mikil umræða um "Bermúda þríhyrning" í Englandi 5. september 2012 06:30
Mikil umræða hefur skapast í Englandi um að þar sé til staðar svæði sem svipar til Bermúda þríhyrningsins svokallaða. Ástæðan fyrir þessari umræðu er að á skömmum tíma hafa fleiri hundruð bréfdúfur horfið sporlaust í norðurhluta landsins. Nýjasta dæmið kom upp í stórri keppni eigenda bréfdúfna í Norður Yorkshire um síðustu helgi. Þar flugu yfir 200 dúfur af stað en keppt var um hver þeirra kæmi fyrst á áfangastað í skoska landamærabænum Galashiels. Aðeins 13 af þessum dúfum náðu til Skotlands og ekkert hefur spurst til hinna. Í frétt um málið í Daily Mail segir að þetta bréfdúfuhvarf komi í kjölfar þess að í svipuðu kappflugi bréfdúfna milli Wetherby og Newcastle hafi nærri 200 dúfur einnig horfið sporlaust. Fleiri fréttir um dularfullt hvarf bréfdúfna á þessu svæði hafa birst í breskum fjölmiðlum. Þeir sem rækta bréfdúfur hafa engar skýringar á hvarfi fugla sinna. Ekki skortir þó kenningar hjá öðrum. Þær eru allt frá því að dúfurnar hafi einfaldlega villst og upp í að bylgjur frá stórri ratsjárstöð breska flughersins hafi eyðilagt ratvísi dúfnanna. Bermúda þríhyrningurinn er þekkt eða raunar alræmt hafsvæði við Bermúdaeyjar í vestanverðu Atlantshafinu. Þar hefur óvenjumikill fjöldi af skipum og flugvélum horfið sporlaust á undanförnum áratugum.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira