Hrun hjá Helsingborg eftir að Alfreð fór frá félaginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. ágúst 2012 13:30 Alfreð Finnbogason. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það er óhætt að segja að sænska liðið Helsingborg sakni íslenska landsliðsmannsins Alfreðs Finnbogasonar sem endaði lánsamning sinn hjá félaginu á dögunum og gekk til liðs við hollenska félagið Heerenveen. Helsingborg var á miklu skriði í síðustu leikjum Alfreðs en hefur nú tapað fyrstu fjórum leikjum sínum án hans. Helsingborg datt í fyrrakvöld út úr forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 0-2 tap á móti Celtic en sænska liðið tapaði leikjunum tveimur samanlagt. Helsingborg hefur aðeins skorað 2 mörk í leikjunum 4 síðan að Alfreð fór. Alfreð skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu í síðasta leik sínum með Helsingborg þegar liðið vann 7-2 stórsigur á Kalmar 12. ágúst síðastliðinn en það er einmitt síðasti sigur sænska liðsins. Alfreð skoraði alls 7 mörk og gaf 2 stoðsendingar í síðustu 5 deildarleikjum sínum með Helsingborg og liðið vann 3 þeirra og tapaði aðeins einum. Á sama tíma var Alfreð einnig með 1 mark og 5 stoðsendingar í tveimur sigrum á pólska liðinu Slask Wroclaw í forkeppni Meistaradeildarinnar. Alfreð er enn í 2. sæti yfir markahæstu leikmenn sænsku deildarinnar með 12 mörk í 17 leikjum en Helsingborgar-liðið er nú komið alla leið niður í 5. sæti. Næstu lið eru skammt á eftir og því gæti liðið dottið fljótlega enn neðar breytist ekki gengi þess heima fyrir. Helsingborg fékk tækifæri til að kaupa Alfreð frá Lokeren en dró lappirnar og missti af möguleikanum. Ef marka má gengi liðsins eftir brotthvarf íslenska landsliðsmannsins sjá þeir örugglega mikið eftir því.Leikir Helsingborg eftir að Alfreð fór:Sænska úrvalsdeildin: 18. ágúst Elfsborg-Helsingborg 2-1 25. ágúst Djurgården-Helsingborg 3-1Forkeppni Meistaradeildarinnar: 21. ágúst Helsingborg-Celtic 0-2 29. ágúst Celtic-Helsingborg 2-0
Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Fleiri fréttir Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Sjá meira