Ná Brassarnir fyrsta Ólympíugullinu sínu í dag? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 06:00 Neymar er stærsta stjarnan í brasilíska liðinu. Mynd/AFP
Brasilía og Mexíkó mætast í dag í úrslitaleiknum í knattspyrnu karla á Ólympíuleikunum í London en leikurinn fer fram á Wembley og hefst klukkan 14.00 að íslenskum tíma. Brasilíumenn eru sigurstranglegasta þjóðin í sögu HM í fótbolta með fimm heimsmeistaratitla en þeir eiga enn eftir að vinna Ólympíugull og margir Brassar eru orðnir langeygðir eftir að landslið þeirra vinni eina titilinn sem á eftir að koma í hús. Brassar hafa vissulega beðið lengi eftir gullinu en þeir töpuðu undanúrslitaleiknum á síðustu leikum í Peking (0-3 fyrir gulliði Argentínu) og töpuðu úrslitaleiknum á leikunum 1984 í Los Angeles (0-2 fyrir Frakklandi) og 1988 í Seoul (1-2 fyrir Sovétríkjunum). Brasilíska liðið er líklegt til að ná loksins gullinu í dag enda búið að vinna alla fimm leiki sína á leikunum með markatölunni 15-5. Liðið er skipað mörgum frábærum fótboltamönnum enda hafa evrópsku stórliðin sýnt þeim nokkrum mikinn áhuga og nokkrir þeirra hafa verið keyptir til stórliða í sumar. Flestra augu verða þó örugglega á Neymar sem margir Brasilíumenn telja meira að segja vera betri en Argentínumaðurinn Lionel Messi. Neymar hefur verið orðaður við Barcelona en hann er eldfljótur og teknískur framherji sem bíður jafnan upp á skemmtileg tilþrif með boltann. Neymar hefur skorað 3 mörk á mótinu. Leandro Damião er hinsvegar markahæsti leikmaður brasilíska landsliðsins með sex mörk í fimm leikjum en hann spilar með Internacional í Brasilíu.
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Enski boltinn Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Lallana leggur skóna á hilluna Ronaldo að semja á ný við Al-Nassr Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Lyon mun áfrýja og Crystal Palace í óvissu Pogba fer til Mónakó frekar en Bandaríkjanna eða Sádi-Arabíu Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Delap skoraði fyrsta markið og Chelsea komst áfram Átján ára gömul og að verða launahæst í sænsku deildinni Sjá meira