Mexíkó vann á Wembley - bið Brasilíu eftir Ólympíugulli lengist enn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 15:53 Mynd/AFP
Mexíkó kom flestum á óvart með því að vinna 2-1 sigur á Brasilíu í úrslitaleik knattspyrnukeppni karla á Ólympíuleikunum í London en úrslitaleikurinn fór fram á Wembley í dag. Mexíkó lék án sinnar stærstu stjörnu, Giovani Dos Santos, sem gat ekki spilað vegna meiðsla, en það kom ekki að sök og mexíkóska liðið vann nokkuð sannfærandi sigur eftir að hafa skorað fyrra markið sitt eftir aðeins 28 sekúndna leik. Brasilíumenn hafa unnið fimm heimsmeistaratitla en aldrei unnið Ólympíugull. Liðið var búið að raða inn mörkum á leikunum, 15 mörk í 5 leikjum, en sóknarmenn Brasilíu komust lítið áleiðis í úrslitaleiknum og skoruðu ekki fyrr en í uppbótartíma leiksins. Oribe Peralta, 28 ára gamall framherji Santos Laguna í heimalandinu, var hetja sinna manna í dag því hann skoraði bæði mörk liðsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Mexíkó vinnur gull í fótbolta á Ólympíuleikum og jafnframt fyrsta gull þjóðarinnar á leikunum í London. Mexíkó fékk sannkallaða draumabyrjun í leiknum þegar Oribe Peralta skoraði eftir aðeins 28 sekúndur. Rafael da Silva, leikmaður Manchester United, gerði þá skelfileg mistök og tapaði boltanum fyrir framan eigin vítateig. Oribe Peralta nýtti sér það og skoraði með hnitmiðaðu skoti rétt utan teigs. Oribe Peralta bætti við öðru marki sínu með skalla á 75. mínútu eftir hornspyrnu en Brassarnir gátu þakkað fyrir að vera ekki búnir að fá á sig fleiri mörk þegar Peralta skoraði annað markið sitt. Hulk náði að minnka muninn á fyrstu mínútu uppbótartíma eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Mexíkóbúa en hann hafði komið inn á sem varamaður í fyrri hálfleiknum. Brasilíumenn pressuðu stíft á lokasekúndunum og Oscar, nýr leikmaður Chelsea, fékk algjört dauðafæri en skallaði yfir af markteig. Mexíkóska liðið hélt út og landaði gullinu sem Brassar geta bara ekki unnið.
Mest lesið Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Flagg fer til Dallas Körfubolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Fleiri fréttir Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Lallana leggur skóna á hilluna Ronaldo að semja á ný við Al-Nassr Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Lyon mun áfrýja og Crystal Palace í óvissu Pogba fer til Mónakó frekar en Bandaríkjanna eða Sádi-Arabíu Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Delap skoraði fyrsta markið og Chelsea komst áfram Átján ára gömul og að verða launahæst í sænsku deildinni „Botafogo ekki í Bandaríkjunum til að hitta Mikka mús“ Sjá meira