Fimmtíu þúsund flóttamenn í Tyrklandi 12. ágúst 2012 12:38 mynd/AP
Tugþúsundir Sýrlendinga hafa flúið yfir landamærin til Tyrklands og annarra nágrannaríkja frá því stjórnarbylting hófst í Sýrlandi á síðasta ári. Yfirvöld í Tyrklandi áætla að rúmlega fimmtíu þúsund flóttamenn séu nú í landinu. Erfiðlega hefur gengið að mæta þörfum flóttamanna og kvarta margir undan skorti á vatni og mat. Stór hluti flóttafólksins heldur nú til í Boynuyogun flóttamannabúðunum í Hatay-héraðinu í norðurhluta Tyrklands. En í aðeins sjötíu og fimm kílómetra fjarlægð frá flóttamannabúðunum halda átökin áfram í Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands. Sem fyrr eru fregnir af stöðu mála í borginni óljósar en talið er að uppreisnarmenn reyni nú að berja aftur sókn öryggissveita sem ný ráða lögum og logum í hinu hernaðarlega mikilvæga Salah al-Din íbúðarhverfi í Aleppo. Yfirvöld í Tyrklandi fylgjast náið með gangi mála í borginni. Fólksflótti úr Aleppo hefur verið með minna móti frá því að orrustan um borgina hófst. Tyrknesk stjórnvöld hafa þó gefið út að þau séu reiðubúin að skjóta skjóli yfir hundrað þúsund flóttamenn. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði með ráðamönnum í Istanbúl í gær. Þar tilkynnti hún að yfirvöld í Bandaríkjunum myndu auka fjárveitingar sínar til Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna um 5.5 milljónir dollara. Er þetta gert vegna þeirra óvissu sem nú ríkir um sýrlenska flóttamenn. Margir flóttamenn hafa þó gagnrýnt Clinton og bandarísk yfirvöld fyrir að styrkja ekki uppreisnarmenn með beinum hætti. Þörf sé á vopnum og orrustuþotum, ekki nokkrum milljónum dollara.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Sjá meira