Erlent

Giffords flytur aftur á heimaslóðir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gabrielle Giffords lenti í alvarlegri skotárás.
Gabrielle Giffords lenti í alvarlegri skotárás. mynd/ afp.
Gabrielle Giffords, fyrrverandi þingmaður á bandaríkjaþingi, og eiginmaður hennar flytja aftur til Tucson á næstunni. Giffords hefur búið í Houston í um eitt og hálft ár þar sem hún hefur undirgengist líkams- og talþjálfun. Hún var hætt komin þegar hún var skotin í höfuðið á pólitískri samkomu í byrjun síðasta árs, en Giffords var ein af nítján sem var skotin. Sex manns fórust í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×