Grétar Rafn reiknar með því að semja í dag eða á morgun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. ágúst 2012 12:35 Grétar Rafn á æfingu landsliðsins í gær. Mynd/Anton
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson segist reikna með því að ganga frá samningum við nýtt félag í dag eða á morgun. Grétar Rafn hefur verið samningslaus frá því í vor en hann var áður á mála hjá Bolton Wanderers. „Það er allt að gerast. Ég reikna með að eitthvað verði klárað í dag eða á morgun. Vonandi í síðasta lagi fyrir helgi," sagði Grétar en vildi ekki tjá sig nánar um félagið sem um ræðir. Grétar Rafn segir undanfarnar vikur, þar sem hann hefur verið án félags, hafa verið erfiðar. „Ég hef ekki getað tekið þátt í verkefnum landsliðsins eins og ég vildi undanfarin ár og glímt við meiðsli. Ég hef verið heill og æft mikið síðustu átta vikur með þennan leik í huga. Þetta er eini leikurinn sem ég get sett í hausinn á mér og síðustu átta vikur hafa verið mjög strembnar," segir Grétar Rafn sem segist hafa verið í góðu sambandi við landsliðsþjálfarann Lars Lågerback. „Við erum á sömu skoðun. Ég vil taka þátt í öllum verkefnum landsliðsins og hann segir að á meðan ég sé heill þá verði ég með. Ég vil leggja mitt af mörkum og tel mig eiga mikið inni ennþá." Grétar Rafn segist mæta í þennan landsleik eins og alla aðra. „Ég mætti á fyrstu æfingu með það hugarfar að ætla að byrja leikinn þó ég sé án félags. Ég ætla að setja pressu á leikmennina í kring og ætla að vinna leikinn. Svo kemur bara í ljós hvort ég byrji, fái einhverjar mínútur eða ekki," segir Siglfirðingurinn sem lítur á leikinn sem tækifæri til þess að sína úr hverju hann sé gerður. „Eins og staðan er núna er ég hérna eingöngu til þess að sýna mig. Þetta er í raun og veru „trial" fyrir mig, sýna að ég sé klár. Ég ætla að sýna að líkaminn og hausinn sé í toppstandi til þess að takast á við leikinn á morgun."
Fótbolti Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Fleiri fréttir Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Sjá meira
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti