Fótbolti

Grétar Rafn reiknar með því að semja í dag eða á morgun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Grétar Rafn á æfingu landsliðsins í gær.
Grétar Rafn á æfingu landsliðsins í gær. Mynd/Anton
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson segist reikna með því að ganga frá samningum við nýtt félag í dag eða á morgun. Grétar Rafn hefur verið samningslaus frá því í vor en hann var áður á mála hjá Bolton Wanderers.

„Það er allt að gerast. Ég reikna með að eitthvað verði klárað í dag eða á morgun. Vonandi í síðasta lagi fyrir helgi," sagði Grétar en vildi ekki tjá sig nánar um félagið sem um ræðir.

Grétar Rafn segir undanfarnar vikur, þar sem hann hefur verið án félags, hafa verið erfiðar.

„Ég hef ekki getað tekið þátt í verkefnum landsliðsins eins og ég vildi undanfarin ár og glímt við meiðsli. Ég hef verið heill og æft mikið síðustu átta vikur með þennan leik í huga. Þetta er eini leikurinn sem ég get sett í hausinn á mér og síðustu átta vikur hafa verið mjög strembnar," segir Grétar Rafn sem segist hafa verið í góðu sambandi við landsliðsþjálfarann Lars Lågerback.

„Við erum á sömu skoðun. Ég vil taka þátt í öllum verkefnum landsliðsins og hann segir að á meðan ég sé heill þá verði ég með. Ég vil leggja mitt af mörkum og tel mig eiga mikið inni ennþá."

Grétar Rafn segist mæta í þennan landsleik eins og alla aðra.

„Ég mætti á fyrstu æfingu með það hugarfar að ætla að byrja leikinn þó ég sé án félags. Ég ætla að setja pressu á leikmennina í kring og ætla að vinna leikinn. Svo kemur bara í ljós hvort ég byrji, fái einhverjar mínútur eða ekki," segir Siglfirðingurinn sem lítur á leikinn sem tækifæri til þess að sína úr hverju hann sé gerður.

„Eins og staðan er núna er ég hérna eingöngu til þess að sýna mig. Þetta er í raun og veru „trial" fyrir mig, sýna að ég sé klár. Ég ætla að sýna að líkaminn og hausinn sé í toppstandi til þess að takast á við leikinn á morgun."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×