Ákvörðun ráðamanna í Ekvador væntanleg 16. ágúst 2012 11:27 Julian Assange. mynd/AP
Yfirvöld í Bretlandi munu koma í veg fyrir að Julian Assange, stofnandi upplýsingaveitunnar WikiLeaks, fari úr landi þó svo að stjórnvöld í Ekvador veiti honum hæli. Ráðamenn í Ekvador munu tilkynna um ákvörðun sína í dag. Assange hefur haldið til í sendráði Ekvador í Lundúnum frá því í júní en hann krefst þess að vera veitt hæli í landinu. Þetta gerði hann til að komast hjá því að verða framseldur til Svíþjóðar þar sem sem hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot. Yfirvöld í Bretlandi telja sig bera lagalega skildu til að framselja Assange enda heimili dómsúrskurður slíkar aðgerðir. Bresk yfirvöld hafa hótað að ganga inn í sendiráðið og handsama Assange. Margir hafa gagnrýnt hótanir Breta. Einna helst Ricardo Patino, utanríkisráðherra Ekvador. Hann sagði í gær að aðgerðir Breta brjóti í bága við alþjóðasáttmála og Vínarsáttmálann um samskipti ríkja. Fjölmennt lið lögreglu er nú fyrir utan sendiráðið í hjarta Lundúna. Þá hafa mótmælendur og aðgerðarsinnar einnig mætt á staðinn til að styðja Assange. Það sló í brýnu milli lögreglumanna og mótmælenda í morgun og voru þrír handteknir í kjölfarið. Búist er við að ráðamenn í Ekvador taki ákvörðun í máli Assange seinna í dag. Yfirvöld í Bretlandi hafa hins vegar gefið út að ef Assange verði formlega veitt hæli í Ekvador þá muni það ekki hafa nein áhrif á stöðu mála. Sjálfur hefur Assange lýst því yfir að hann óttist mjög að verða sendur til Svíþjóðar. Hann telur að þarlend yfirvöld muni senda hann aftur til Bandaríkjanna. Þá muni langar yfirheyrslur bíða hans þar vegna birtingar bandaríska leyniskjala sem WikiLeaks stóð fyrir.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira