Innlent

Féll af reiðhjóli og slasaðist

Karlmaður á fimmtugsaldri slasaðist þegar hann féll á reiðhjóli á Skólavörðuholti um tvö leitið í nótt. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og að sögn lögreglu var hann með mikla áverka í andliti. Meðal annars höfðu nokkrar tennur brotnað í fallinu. Hann var ekki með öryggishjálm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×