Fótbolti

Kári Árnason byrjar vel með Rotherham

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kári Árnason
Kári Árnason Mynd. / Getty Images
Knattspyrnumaðurinn Kári Árnason lék sinn fyrsta leik með Rotherham United í gær en hann gekk til liðsins fyrr í sumar.

Rotherham bar sigur úr býtum, 2-1, gegn Barnsley í æfingaleik sem fram fór í Bandaríkjunum.

Kári stóð sig vel í leiknum og lagði til að mynda upp eitt mark.

Blaðamaður á vellinum ytra talaði um að Kári hafi staðið sig frábærlega og greinilega um góðan leikmann að ræða.

Rotherham ætlar sér stóra hluti á næstum árum og markmiðið að rjúka upp um deild. Liðið leikur núna í ensku D-deildinni en eigendur félagsins hafa stór markmið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×