Fótbolti

Eiður Smári búinn að ganga frá starfslokasamningi við AEK

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gríska félagið AEK Aþena tilkynnti það á heimasíðu sinni í kvöld að félagið væri búið að semja um starfslok við íslenska landsliðsmanninn Eið Smára Guðjohnsen. Eiður Smári var aðeins búinn að vera í eitt ár hjá félaginu en missti af meiri hluta tímabilsins eftir að hafa fótbrotnað í október.

Eiður Smári flaug til Grikklands um helgina og gekk frá starfslokum sínum hjá félaginu en áður hafði komið fram að Eiður og AEK hefði náð munnlegu samkomulagi. Nú er það hinsvegar orðið endanlega ljóst að Eiður hefur spilað sinn síðasta leik í Grikklandi.

Eiður Smári fékk 200 þúsund evrur við undirritun starfslokasamningsins samkvæmt heimasíðu AEK en félagið slapp þar með við að greiða honum þær 1,2 milljónir evra sem það skuldaði honum og föður hans Arnóri Guðjohnsen til loka samningsins sem átti að renna út næsta vor.

AEK á í fjárhagsvandræðum og lagði því mikla áherslu á að losna undan samning sínum við Eið Smára sem hefur í framhaldinu verið orður við lið í Sádí-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×