Stjórnarþingmaður segir veiðigjaldið hættulegan landsbyggðarskatt Kristján Már Unnarsson skrifar 20. júní 2012 22:15
Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir nýsamþykkt lög um veiðigjald hættuleg fyrir sjávarbyggðir og óttast að smærri útgerðir fari í þrot. Jón var eini stjórnarþingmaðurinn sem ekki studdi þreföldun veiðigjaldsins. Hann kveðst í samtali við Stöð 2 hafa áhyggjur af sjávarbyggðum og minni útgerðum, einhæfum einyrkjaútgerðum, - að þetta verði of há gjaldtaka og komi út sem hreinn landsbyggðarskattur fyrir byggðarlögin á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Norðurlandi og víðar í kringum landið. Jón var sá sem Vinstri grænir treystu best fyrir sjávarútvegsráðuneytinu þegar flokkurinn komst til valda og þekkir vel greinina eftir tvö og hálft ár í ráðuneytinu. Hann telur að stærstu fyrirtækin gætu vel hliðrað til, og væntanlega borið þetta gjald, en hin muni eiga erfitt með það. Fáir þingmenn þekkja landsbyggðina betur en Jón, sem er fæddur á Ströndum, uppalinn á Snæfellsnesi og starfaði og bjó í dreifbýli áður en hann settist á þing. „Svona mikil gjaldtaka getur leitt til aukinnar samþjöppunar í útgerð. Minni útgerðirnar gefist upp í sinni starfsemi. Þannig að svona mikil inngrip, ófyrirséð, eru að mínu viti hættuleg fyrir þessar sjávarbyggðir sem standa mjög veikt fyrir," segir Jón. Í þingumræðunum í gærkvöldi stráði Jón salti í sár stjórnarforystunnar með því að lesa upp fimmtán ára gömul rök Steingríms J. Sigfússonar gegn veiðigjaldi, en Steingrímur sagði þá að skatturinn væri óréttlátur og kæmi harkalega niður á sjávarbyggðum, veiðigjald yrði áfall fyrir landsbyggðina og myndi líklega leiða til samþjöppunar og fækkunar eininga. „Það eru samfélögin úti á landi sem ég ber sérstaklega fyrir brjósti og fyrir þau berst ég," sagði Jón. Viðtalið má sjá hér að ofan.
Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Innlent Þetta fær Hildur í laun Innlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Innlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Erlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Erlent Fleiri fréttir Baráttan um 17. júní Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þetta fær Hildur í laun Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“