Maðurinn sem myndin Goodfellas byggði á er látinn 14. júní 2012 07:16
Mafíubófinn Henry Hill sem var undirstaða myndarinnar Goodfellas er látinn 69 ára að aldri. Vitnisburður hans á sínum tíma kom 50 mafíuforingjum og bófum undir lás og slá. Henry Hill lést á heimili sínu í Los Angeles af hjartaslagi. Leikstjórinn Martin Scorsese gerði myndina Goodfellas eftir ævisögu Hill og telst myndin til betri verka leikstjórans en Ray Liotta lék aðalhlutverkið. Hill er af fátæku fólki í Brooklyn kominn en hann hóf störf fyrir mafíuna sem sendill aðeins 14 ára gamall. Hann var handtekinn í fyrsta sinn 16 ára gamall þegar hann reyndi að ræna vetrardekkjum fyrir bíl eiginkonu mafíuforingjans Vito Tuddy Vario. Hann var síðan á framabraut í mafíunni og átti m.a. hlut að hinu alræmda Lufthansa ráni á John F. Kennedy flugvellinum árið 1978. Síðar gerðist Hill vitni fyrir FBI og vitnisburður hans kom 50 foringjum og bófum mafíunnar í fangelsi. Hann hvarf síðan inn í vitnavernd FBI en gat ekki haldið sig frá glæpunum. Eftir margar handtökur fyrir ýmsa glæpi var honum sparkað úr vitnaverndinni. Hill lifði rólegu lífi með kærustu sinni síðustu ár sín í Los Angeles.
Mest lesið Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Sjá meira