Ronaldo skaut Portúgal í átta liða úrslitin 17. júní 2012 16:10 Cristiano Ronaldo skaut Portúgal í átta liða úrslit Evrópumóts landsliða í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Cristiano Ronaldo skaut Portúgal í átta liða úrslit Evrópumóts landsliða í kvöld í 2-1 sigri liðsins gegn Hollendingum í B-riðlinum. Holland náði ekki að landa stigi í þessum riðli og er þetta í fyrsta sinn sem Hollendingar eru í slíkri stöðu eftir Evrópumót í fótbolta. Portúgal mun mæta liði Tékklands í átta liða úrslitum. Þjóðverjar mæta liði Grikklands. Staðan í riðlinum fyrir lokaumferðina var þannig að öll fjögur liðin gátu fallið úr keppni og öll gátu komist áfram. Rafael van der Vaart kom Hollendingum yfir strax á 11. mínútu en aðeins tveggja marka sigur hefði dugað fyrir Hollendinga til þess að komast upp úr hinum svokallaða „dauðariðli." Bert van Marwijk þjálfari Hollands lagði því alla áherslu á sóknarleikinn – en það dugði ekki til þar sem að varnarleikur Hollands var helsta vandamálið liðsins í þessari keppni. Cristiano Ronaldo jafnaði metin á 28. mínútu eftir frábæra sendingu frá João Pereira. Ronaldo var síðan aftur á ferðinni á 74. mín. þar sem hann fékk sendingu frá fyrrum liðsfélaga sínum úr Manchester United, Nani. Ronaldo fékk boltann vinstra meginn í vítateignum, lék á einn varnarmann og skoraði af öryggi í nærhornið. Ronaldo var gríðarlega öflugur í þessum leik en hann átti m.a. tvö skot sem fóru í markstöngina. Portúgal vann því tvo leiki af þremur í riðlinum, 3-2 sigur gegn Dönum og 2-1 sigur gegn Hollendingum. Holland tapaði öllum þremur leikjum sínum og liðið skoraði aðeins tvö mörk en fékk fimm mörk á sig. Boltavakt Vísis var með beina lýsingu frá viðureign Portúgals og Hollands B-riðli á EM 2012. Hér fyrir neðan eru allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Barcelona - Athletic | Fyrsti leikur Rodri fyrir Börsunga Borac - Víkingur | Verða að snúa taflinu við á erfiðum útivelli Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjá meira