Innlent

Segir ummæli Steingríms um málþóf kjánaleg

Erla Hlynsdóttir skrifar
Segist ekki eiga roð í Steingrím varðandi málþóf.
Segist ekki eiga roð í Steingrím varðandi málþóf.
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir það kjánalegt hjá formanni Vinstri Grænna að halda því fram að málþóf stjórnarandstöðunnar komi í veg fyrir framgang mikilvægra mála. Hún segir formanninn hafa talað miklu lengur á þingpöllum en hún.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að hér áður hafi hann upplifað svonefnt málþóf þannig að mikil átök hafi verið um einstök ágreiningsmál.

„Og tíminn fór þá oft í langar umræður um þau, en núna fer stærsti hluti tímans í endalausar fimm mínútna umræður og fimmtán mínútna andsvör, eða meðsvör, þar sem samherjar eru í andvörum hverjir við aðra," sagði Steingrímur.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, var meðal þeirra sem sérstaklega voru nefndir í þessu sambandi.

„Mér finnst þetta nú hálf kjánalegur og hreint út sagt fáránlegur málflutningur hjá Steingrími J. Sigfússyni og sem stenst einfaldlega enga skoðun þegar tölurnar eru skoðaðar í gegn um tíðina," segir Ragnheiður Elín.

„Mér finnst hann vera að gera sig sekan um að fara af stað með einhvern spuna núna þegar við erum að fara í lokahnykkinn á þinginu þar sem hann ætlar að reyna að halda því fram að stjórnarandstaðan sé að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin nái málum sínum fram á þinginu og þar er hann að reyna að breiða yfir hversu seint ríkisstjórnin kemur fram með málin, og hversu illa undirbúin hún er."

Spurð hvort hún standi fyrir málþófi svarar Ragnheiður: „Ég held að ef við skoðum tölurnar þá verð ég því miður að viðurkenna að ég hef ekki roð í þetta fólk sem er nú farið að væna okkur um þetta. Ég kíkti til gamans á gamlar tölur, af því steingrímur var að tala um athugasemdir okkar, að við værum komin af stað með nýja tegund af málþófi, þá er það nú þannig að athugasemdir hans nokkur ár í röð eru fleiri og taka meiri tíma en allar þingræðurnar mínar. Þannig að ég verð að játa mig sigraða ef Steingrímur J Sigfússon ætlar að fara að bera ræðutíma okkar saman."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×