Erlent

Beindu sprengjum sínum að höfuðstöðvum leiðtoga Hamas

HJH skrifar
Gríðarleg átök hafa verið á Vesturbakkanum undanfarna daga.
Gríðarleg átök hafa verið á Vesturbakkanum undanfarna daga. Mynd/ AFP.
Ísraelar beindu í nótt sprengjum sínum að höfuðstöðvum leiðtoga Hamas á Gaza svæðinu og gjöreyðilögðu bygginguna, en þetta er fjórði dagurinn í röð sem Ísraelar gera loftárásir á svæði Palestínu. Að minnsta kosti þrjátíu og átta palestínumenn og þrír ísraelsmenn hafa látist í árásunum síðustu daga.

Í gærkvöldi kölluðu Ísraelsmenn út sjötíu og fimm þúsund varaliða í hernum, auk þess sem herinn hefur lokað nokkrum þjóðvegum sem liggja að Gaza og segja fréttaskýrendur þetta vera merki um að Ísraelsmenn séu að undirbúa landhernað á Gaza en þeir segja enga ákvörðun hafa verið tekna um það samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×