Brynjar Níelsson: Heimild til þess að refsa piltunum, annað er þvæla 15. maí 2012 21:30 Mynd / / Haraldur Jónasson „
Ég er ósáttur við að það sé ráðist að dómnum og verjandanum og þeir séu sakaðir um að brjóta reglur, en allt saman er þetta rangt," segir hæstaréttarlögmaðurinn Brynjar Níelsson sem er jafnframt formaður Lögmannafélags Íslands, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag, en þar gagnrýndi hann umræðuna um tvo flóttamenn sem hingað komu til lands og voru dæmdir í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals í Héraðsdómi Reykjaness. Eins og kunnugt er þá segjast piltarnir vera 15 og 16 ára gamlir, þó lögreglan á Suðurnesjum hafi gefið það út að grunur leiki á að þeir séu eldri. Þegar í ljós kom að þeir höfðu verið dæmdir og vistaðir í fangelsi, var öðrum þeirra komið fyrir á Fit-Hostel, þar sem flóttamenn sem hingað koma búa, en hinum var komið fyrir á einkaheimili. Dómurinn hefur vakið hörð viðbrögð. Meðal annars gagnrýndi Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, niðurstöðuna harðlega og sagði að ef um íslensk ungmenni hefði verið að ræða hefðu þau líklega ekki fengið svo þungan dóm. Brynjar bendir á að báðir piltarnir séu sakhæfir, en sakhæfisaldur hér á landi eru fimmtán ár. Þá gagnrýnir hann þá orðræðu þar sem því er haldið fram að dómi hafi gerst brotlegur við samninga um réttarstöðu flóttamanna, sem er ekki lögfestur hér á landi. Brynjar bætir við piltarnir hafi ekki verið dæmdir sem flóttamenn, heldur hafi þeir verið dæmdir fyrir skjalfals, enda framvísuðu þeir fölsuðum vegabréfum við komuna hingað til lands. Þá bendir Brynjar einnig á að staðan hafi ekki verið sú að piltarnir hafi verið að koma beint frá landi þar sem lífi þeirra og frelsi hafi verið ógnað, þeir hafi verið að koma frá Finnlandi. „Þeir uppfylla ekki nein þessi skilyrði sem þarf, því er heimild til þess að refsa þeim, og annað er þvæla," segir Brynjar. Hann gagnrýnir einnig þingheim harðlega fyrir að gagnrýna verjanda piltanna, sem Brynjar segir að hafi mátt þola óvægna umræðu á þingi þar sem hann gat ekki andmælt þeim ásökunum sem á hann voru bornar. „Mér finnst það ómaklegt og menn eiga ekki að vega að mönnum í þingsal þar sem viðkomandi getur ekki svarað fyrir sig," sagði Brynjar. Hægt er að hlusta á viðtalið við Brynjar í Reykjavík síðdegis, hér.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira