Erlent

Bankamaður mafíunnar handtekinn eftir áratugi á flótta

Vito Palazzolo, 64 ára gamall ítalskur bankamaður með náin tengsl við mafíuna, hefur verið handtekinn í Taílandi.

Palazzolo hefur verið á flótta undan lögreglunni í áratugi eða allt frá því að hann var dæmdur fyrir peningaþvætti fyrir Cosa Nostra mafíuna á Sikiley í kringum 1980.

Megnið af tímanum hefur Palazzolo dvalið í Suður Afríku en yfirvöld þar hafa ætíð neitað að framselja hann til Ítalíu.

Palazzolo var lykilmaður í svokölluðu Pizza Connection máli í Bandaríkjunum þar sem hundruðum kílóa af heróini var dreift í gegnum pizzastaði í Bandaríkjunum. Hann vann þá í svissneskum banka og sá þar um peningaþvætti á gróða mafíunnar úr þessum viðskiptum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×