Erlent

Að minnsta kosti einn látinn í Oakland

mynd/ABC
Að minnsta kosti einn er látinn og átta særðir eftir skotárás í skóla í Oakland í Bandaríkjunum. Fjórir hafa verið fluttir á spítala.

Mikill viðbúnaður er við Oikos-háskólann í Oakland. Lögreglan hefur ekki haft upp á árásarmanninum.

Sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum hafa sýnt myndir af særðum sem fluttir eru á brott úr skólanum.

Oikos er kristilegur skóli. Á heimasíðu skólans kemur fram að þar sé kennd guðfræði, tónlistarfræði og hjúkrun.


Tengdar fréttir

Fimm særðir eftir skotárás í Oakland

Mikill viðbúnaður er við Oikos-háskólann í Oakland í Bandaríkjunum. Að minnsta kosti fimm eru sárir eftir skotárás í skólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×