Erlent

Slökkvilið Moskvuborgar barðist við eldsvoða í skýjakljúfi

Slökkvilið Moskuborgar barðist við eldsvoða langt fram á nótt í skýjakljúf sem á að verða ein hæsta bygging Evrópu þegar smíði hans lýkur.

Eldurinn kom upp á 67. hæð skýjakljúfsins í um 200 metra hæð seint í gærkvöldi og breiddist brátt yfir á næstu tvær hæðir fyrir neðan. Fljótlega varð eldurinn svo mikill að hann sást vel í allt að 10 kílómetra fjarlægð.

Fjórtán manns voru hæðinni fyrir ofan eldsvoðann þegar hann hófst en þeim var bjargað með þyrlum. Slökkviliðið notaði einnig þyrlur til að ráða niðurlögum eldsins. Tókst það eftir nærri fimm klukkutíma baráttu.

Skýjakljúfur þessi er enn í byggingu en hann ásamt systurturni við hliðina eiga að verða 360 metra háir þegar smíði þeirra lýkur. Þeir ganga undir nafninu Federation turnarnir og verða meðal hæstu bygginga Evrópu fullsmíðaðir.

Fram kemur í fréttum rússneskra fjölmiðla að athugasemdir hafi áður komið fram við brunvarnir í þessum byggingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×