Erlent

Síðustu gíslar Farc leystir úr haldi

Farc skæruliðasamtökin í Kólombíu hafa leyst síðustu 10 gíslana sína úr haldi en allir þeirra höfðu verið gíslar Farc í meir en áratug.

Hópurinn samanstendur af lögreglu- og hermönnum sem Farc náði í bardögum í Kólombíu fyrir áratug síðan.

Juan Manuel Santos forseti Kólombíu fagnaði lausn gíslanna í gærdag og sagði að frelsun þeirra væri ánægjuefni fyrir alla þjóðina.

Það var Rauði krossinn sem hafði milligöngu um að gíslarnir yrðu látnir lausir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×