Erlent

Mikið í húfi fyrir Santorum í prófkjörinu í Wisconsin

Næsta prófkjör Repúblikanaflokksins er í Wisconsin ríki í dag. Pólitískir fréttaskýrendur í Bandaríkjunum segja að mikið sé í húfi fyrir Rick Santorum í þessu prófkjöri.

Prófkjörið gæti verið síðasta tækifæri Santorum til að sannfæra Repúblikana að hann eigi erindi sem forsetaefni flokksins í komandi kosningum í haust.

Skoðanakannanir sýna að lítill munur er á Santorum og Mitt Romney í ríkinu en Romney mælist þó með þrjú prósent fylgi umfram Santorum sem stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×