Erlent

Föstudagurinn langi er helgidagur á Kúbu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Benedikt sextándi heimsótti Kúbu um daginn.
Benedikt sextándi heimsótti Kúbu um daginn. mynd/ afp.
Föstudagurinn langi er helgidagur á Kúbu núna í fyrsta sinn í marga áratugi. Ákvörðun um það var tekin eftir að Benedikt sextándi páfi heimsótti Kúbu í síðustu viku. Hefðbundnir helgidagar voru afnumdir á Kúbu eftir byltinguna 1959 og afar fáir leggja rækt við trú þar í landi. Engu að síður er Kirkjan áhrifamesta stofnun landsins á eftir kommúnistastjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×