Erlent

George Bush eldri styður Mitt Romney

Þungaviktarmenn í Repúblikanaflokknum keppast nú við að lýsa yfir stuðningi sínum við Mitt Romney sem næsta forsetaefni flokksins.

George Bush eldri, fyrrum forseti Bandaríkjanna, hefur nú bætst í þennan hóp. Bush segist standa heilshugar að baki hinum gamla vini sínum Romney.

Fyrr í vikunni lýsti Marco Rubio hinn valdamikli öldungardeildarþingmaður frá Flórída yfir stuðningi sínum við Romney og fleiri þungaviktarmenn hafa hoppað á vagn frambjóðandans á undanförnum vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×