Erlent

Hjón fundu sjaldgæfa 6.000 ára gamla rafperlu

Hjón sem voru á gangi eftir ströndinni við Tårs á Lálandi fundu afar sjaldgæfa útskorna rafperlu þar. Rafið er skorið út í líki lítils gullfisks en það er talið vera um 6.000 ára gamalt.

Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að perlan sé mjög vel varðveitt. Hún stafar frá samfélagi sem vitað er að var á þessu svæði á árunum frá því um 4.000 fyrir Krist sem í Danmörku er kölluð bóndasteinsöldin. Þá var hafsvæðið fyrir utan Láland fast land en hefur sökkið í sæ síðan.

Allar líkur eru á að rafperlan hafi verið í eigu eins og leiðtogum þessa samfélags. Ekki er vitað til að samsvarandi rafperla hafi fundist á þessu svæði á síðari tímum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×