Erlent

Japanir loka enn einu kjarnorkuveri

Stjórnvöld í Japan hafa lokað enn einu af kjarnorkuverum sínum. Er þá aðeins eitt af þeim 54 kjarnorkuverum sem til eru í landinu en í gangi. Þessu eina sem eftir er á síðan að loka í maí n.k.

Þessari lokanir á kjarnorkuverum eru tímabundnar en gripið var til þeirra í kjölfar kjarnorkuslyssins í Fukushima á síðasta ári.

Fyrir kjarnorkuslysið í fyrra kom nærri því þriðjungur af raforku Japana frá kjarnorkuverum. Japnir hafa bætt orkutapið upp með því að enduropna olíudrifin orkuver sem lokað hafði verið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×