Erlent

Vændismálið vindur upp á sig

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dominique Strauss-Kahn er í vondum málum.
Dominique Strauss-Kahn er í vondum málum. mynd/afp.
Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var í dag ákærður fyrir aðild sína að vændishring. Strauss-Kahn hefur viðurkennt að hann hafi sótt teiti þar sem vændiskonur voru en hann neitar því að hann hafi vitað að konurnar væru vændiskonur.

Í maí síðastliðnum sagði Strauss-Kahn upp störfum sem framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir að hann varð ásakaður um að hafa reynt að nauðga herbergisþernu í New York. Ákærurnar voru síðar látnar niður falla en þernan höfðaði einkamál gegn Strauss-Kahn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×