Erlent

Evrópubúar drekka mest áfengi af öllum jarðarbúum

Í nýrri skýrslu frá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni kemur fram að Evrópubúar drekka mest áfengi af öllum jarðarbúum.

Raunar er neyslan innan landa Evrópusambandsins nær tvöföld meðalneyslan á heimsvísu. Evrópubúar drekka að meðaltali 12,5 lítra af hreinum vínanda á ári sem samsvarar þremur vínglösum á dag.

Áfengisneyslan er mest í mið- og austur Evrópu en minnst á Norðurlöndum eða 10,4 lítrar af hreinum vínanda.

Á Íslandi er neyslan minnst af Norðurlöndunum eða nær 9 lítrar á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×