Erlent

Þrír fangar teknir af lífi í Japan

Yfirvöld í Japan hafa tekið þrjá fanga af lífi með hengingu en Japan er ein af sárafáum iðnaðarþjóðum sem enn leyfa dauðarefsingu.

Í Japan er dauðarefsingunni þó ekki beitt nema viðkomandi glæpamaður hafi fleiri en eitt morð á samviskunni. Skoðanakönnun sem gerð var á síðasta ári sýnir að yfir 80% japönsku þjóðarinnar er hlynnt því að dauðarefsingar verði áfram við lýði.

Sem stendur bíða um 100 fangar þess í Japan að verða líflátnir með hengingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×