Erlent

Anchorman fær framhald

Grínleikarinn Will Ferrell mætti óboðinn í spjallþáttinn Conan í gær. Hann tilkynnti þar að kvikmyndin vinsæla Anchorman fengi loks framhald.

Ferrell var í gervi Ron Burgundy sjálfs og spilaði af mikilli leikni á þverflautu. Hann tilkynnti síðan um áform sín við mikinn fögnuð áhorfenda.

Anchorman: The Legend og Ron Burgundy halaði inn 91 milljón dollara þegar hún var frumsýnd árið 2004.

Lítið er vitað um söguþráð nýju myndarinnar. Það er þó ljóst að Adam McKay mun annast leikstjórn framhaldsins. Þá munu þeir Paul Rudd og Steve Carrell einnig leika í myndinni.

Hægt er að sjá tilkynningu Will Ferrells hér fyrir ofan. Einnig er hægt að nálgast sýnishorn úr Anchorman: The Legend of Ron Burgundy hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×