Erlent

Aftökum fjölgaði á síðasta ári

Í nýrri ársskýrslu mannréttindasamtakann Amnesty International um dauðarefsingar kemur fram að 676 manns hafi verið teknir af lífi á síðasta ári.
Í nýrri ársskýrslu mannréttindasamtakann Amnesty International um dauðarefsingar kemur fram að 676 manns hafi verið teknir af lífi á síðasta ári. mynd/AP
Í nýrri ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International um dauðarefsingar kemur fram að 676 manns hafi verið teknir af lífi á síðasta ári.

Heildartalan er þó sögð vera margfalt hærri enda voru þúsundir manns teknir af lífi í Kína.

Þetta er aukning frá árinu áður en vitað er til þess að 527 aftökur hafi farið fram árið 2010.

Þessi aukning er rakin til Austurlanda nær en mun fleiri voru teknir af lífi í Írak, Íran og Sádí Arabíu í fyrra en árið 2010.

Þá fækkar aftökum í Bandaríkjunum en 43 voru teknir af lífi í landinu á síðasta ári. Bandaríkin eru samt sem áður í fimmta sæti yfir þau lönd sem framkvæmdu flestar aftökur á síðasta ári.

Kína er enn sem fyrr í efsta sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×