Erlent

Tókýó þagnaði í eina mínútu

Landsmenn minntust hinna látnu með margvísislegum hætti.
Landsmenn minntust hinna látnu með margvísislegum hætti. Mynd / AP
Keisari Japans ávarpaði þjóð sína í dag þegar þess var minnst að eitt ár er liðið frá því jarðskjálfti skók landið og flóðbylgja fylgdi á eftir með þeim afleiðingum að minnst 20 þúsund manns létust. Þetta er í annað skiptið sem keisarinn ávarpar þjóðina í beinni útsendingu, síðast var það skömmu eftir að jarðskjálftinn reið yfir.

Í breska dagblaðinu The Daily Telegraph er því lýst þegar höfuðborg Japans, Tókýó, þagnaði bókstaflega þegar fórnarlamba náttúruhamfaranna var minnst með mínútu þögn. Borgarbúar stoppuðu út á gangstéttum og við vinnu sína, lutu höfði og minntust fórnarlambanna í þögn.

Keisari Japans sagði að landsmenn ættu einnig að minnast þeirra fjölmörgu sem létust við björgunarstörf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×