Einn mesti listafundur allra tíma í Flórens 12. mars 2012 22:51 Sérfræðingarnir telja sig hafa fundið fræga veggmynd eftir Leonardo da Vinci. mynd/National Geographic
Vísindamenn og listfræðingar sem leitað hafa árum saman að horfnu málverki eftir Leonardo da Vinci hafa fundið málningarleifar sem eru áþekkar þeim sem meistarinn forni notaðist við. Málningarleifarnar fundust í vegg í ráðhúsinu í Flórens á Ítalíu, Palazzo Vecchio. Sérfræðingarnir eru sannfærðir um að þar sé goðumlík veggmynd sem da Vinci málaði fyrir 500 árum niðurkomin. Leonardo málaði veggmyndina árið 1503. Hann var beðinn um að framkvæma myndræna lýsingu á Orrustunni við Anghiari. Samtímamenn fögnuðu verkinu og var hún af mörgum talið ein glæsilegasta veggmynd allra tíma. Leitin hefur staðið yfir í rúm 35 ár og telja vísindamennirnir sig nú hafa fundið verk da Vincis á bak við risavaxið veggmálverk eftir listamanninn Giorgio Vasari.Cerca Trova, eða leitið og þér munið finna, stendur skrifað í litlu letri á veggmynd Vasari. Þetta telja sérfræðingar vera vísbendingu um að mynd da Vinci sé þarna að finna.mynd/APÞeir notuðust við agnarsmáar myndavélar og speglunartæki til að gægjast bak við verkið. Það var því mikil ánægja þegar samanburður á málningarleifum sem þeir tóku af veggmyndinni reyndist passa við helstu verk da Vincis - þar á meðal Monu Lisu. Ef vísindamönnunum tekst að færa sönnur á að veggmyndin sé falin í veggnum þá er fundurinn einn mesti listafundur síðustu 100 ára.
Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira