Erlent

Assad fékk ráðgjöf frá Íran um baráttu gegn uppreisnarmönnum

Breska blaðið The Guardian hefur komist yfir fjölda tölvupósta til og frá Bashir al-Assad Sýrlandsforseta, og Asma al-Assad eiginkonu hans.

Guardian er byrjað að birta fréttir byggðar á þessum tölvupóstum en þar kemur m.a. fram að Assad hefur ítrekað fengið ráðgjöf frá Írönum um hvernig hann eigi að berja niður uppreisnina í Sýrlandi.

Tölvupóstarnir komust í hendur blaðsins í gegnum uppreisnarmenn en þeir gátu nýtt póstana á undanförnum mánuðum til að vara við árásum sýrlenska hersins víða í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×