Gylfi með tvö mörk fyrir Swansea í 3-0 útisigri á Fulham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2012 14:30 Gylfi Þór Sigurðsson Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Swansea í 3-0 útisigri á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag og heldur því áfram að slá í gegn í bestu deild í heimi. Íslenski miðjumaðurinn sem er á láni frá þýska liðinu Hoffenheim hefur þar með skorað fimm mörk í níu deildarleikjum með Swansea og Swansea komst upp í áttunda sæti deildarinnar með sínum þriðja sigri í röð. Swansea var með góð tök á leiknum allan tímann og Fulham-liðið komst lítið áfram gegn vel spilandi liði Swansea. Gylfi var síðan stórhættulegur allan leikinn eins og hann hefur verið allt síðan að kom fyrst við sögu hjá velska liðinu. Gylfi fékk frábært færi á 29. mínútu eftir laglega sókn en skot hans frá vítateigslínunni rétt strauk stöngina. Gylfi bætti fyrir þetta á 36. mínútu þegar hann skoraði með skutluskalla úr markteignum eftir fyrirgjöf Wayne Routledge og sendingu frá Scott Sinclair. Gylfi var ekki hættur því hann skoraði sitt annað mark á 66. mínútu. Gylfi hóf sóknina keyrði upp að vítateignum, gaf út til hægri á Wayne Routledge og fékk síðan boltann aftur inn í teiginn og skoraði af öryggi. Joe Allen skoraði þriðja mark Swansea á 77. mínútu eftir sendingu frá Scott Sinclair og varnarmistök Philippe Senderos í liði Fulham. Gylfi Þór Sigurðsson fékk síðan heiðursskiptingu í uppbótartíma leiksins.
Mest lesið Stjarnan - Tindastóll | Stólarnir vilja svara fyrir sárt tap Körfubolti Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Fótbolti Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Körfubolti Þriðji sigur Liverpool í röð Enski boltinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Enski boltinn Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Lést í miðjum leik Fótbolti Fleiri fréttir Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Sjá meira