Erlent

Meirihluti Þjóðverja andvígur neyðarláninu til Grikkja

Ný skoðanakönnun í Þýskalandi sýnir að töluverður meirihluti Þjóðverja eða 62% vilja ekki að Grikkland fái nýtt neyðarlán en 33% þeirra eru meðmæltir slíku.

Andstaða Þjóðverja hefur aukist nokkuð á síðustu vikum því fyrir mánuði síðan sýndi sambærileg könnun að 53% Þjóðverja voru andvígir neyðarláninu.

Það eru Þjóðverjar sem leggja mest af fé til neyðarlánsins af ríkjum evrusvæðisins en þeir óttast að lánið muni ekki koma í veg fyrir gjaldþrot Grikklands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×