Erlent

Skýstrókar valda usla í Bandaríkjunum

Frá vettvangi í Ohio.
Frá vettvangi í Ohio. mynd/AP
Að minnsta kosti 28 létust þegar skýstrókar mynduðust í miðríkjum Bandaríkjanna í nótt. Skýstrókarnir ollu miklum usla í Indiana, Kentucky og Ohio.

Stórfelldar skemmdir urðu á húsnæðum, verslunum og opinberum stofnunum. Indiana varð illa úti í óveðrinu og létust 14 manns þegar skýstrókar gengu yfir bæinn Henrywille.

Ekki er vitað hve margra er saknað. Ekkert rafmagn er á þá þeim svæðum sem verst urðu úti í storminum og hefur björgunarmönnum gengið erfiðleika að leita í rústunum.

Fyrr í vikunni mynduðust skýstrókar í miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Þá var neyðarástandi lýst yfir í Kansas og létust 13 manns í óveðrinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×