Erlent

Sextán látnir eftir lestarslys í Póllandi

Nú þegar er hafin rannsókn á slysinu.
Nú þegar er hafin rannsókn á slysinu. mynd/AP
Að minnsta kosti 16 eru látnir og 60 særðir eftir lestarslys í Póllandi í gærkvöldi. Samkvæmt fjölmiðlum í Póllandi lentu tvær lestar saman sem voru á leið frá Varsjá og Kraká.

Talið er að 350 manns hafi verið um borð í lestunum þegar slysið átti sér stað. Forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, mætti á slysstað snemma í morgun ásamt nokkrum ráðherrum.

Hann sagði að slysið væri það versta á síðustu árum í Póllandi.

Þyrlur og sjúkrabílar hafa flutt slasaða á sjúkrahús en enn er leitað í vögnunum. Nú þegar er hafin rannsókn á slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×