Erlent

Maðurinn á bak við Svarthöfða er látinn

Úr kvikmyndinni The Empire Strikes Back.
Úr kvikmyndinni The Empire Strikes Back. mynd/wikipedia
Listamaðurinn sem hannaði útlit Svarthöfða úr Stjörnustríðsmyndunum er látinn. "Þegar orð gátu ekki gert hugmyndum skil þá leitaði ég til hans," sagði George Lucas.

Hönnun Ralps McQuarrie er bersýnileg í öllum Stjörnustríðmyndum. Hann sá um útlit Svarthöfða, Chewbacca, R2-D2 og C-3PO. Hann var 82 ára gamall þegar hann lést.

Á vefsíðu McQuarries segir: „Við eigum eftir að sakna þín Ralph. Þú er skærasta stjarnan í vetrarbrautinni."

McQaurrie kom að útlitshönnun margra kvikmynda. Þar á meðal er E.T. eftir Steven Spielberg og Cocoon frá árinu 1985. Hann hlaut Óskarsverðlaun fyrir þá síðarnefndu.

Ralph McQuarriemynd/wikipedia
Hann sá einnig um myndræna útsetningu á umfjöllun CBS fréttastofunnar um Apollo geimferðaáætlunina. Þá hannaði hann einnig geimskipin frægu í kvikmynd Steven Spielbergs, Close Encounters of the Third Kind.

Í tilkynningu frá George Lucas, framleiðanda Stjörnustríðsmyndanna, segir að framlag McQuarries hafi fyllt leikura, höfunda og framleiðendur kvikmyndanna andagift.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×