Erlent

Hrói höttur á sveimi í bænum Braunschweiger

Óþekktur Hrói höttur er á sveimi í bænum Braunschweiger í Neðra Saxlandi. Þessi einstaklingur hefur dreift hátt í 200.000 evrum á leynilegan hátt til ýmissa góðgerðarstofnana., kirkna og líknarstofnanna í bænum á undanförnum dögum.

Féið, yfirleitt í 500 evra seðlum, hefur fundist á ýmsum stöðum á þessum stofnunum eins og bakvið dyr, inni í sálmabókum, undir dyramottum eða í eldhúshillum. Þessum peningagjöfum fylgja oft úrklippur úr dagblöðum þar sem viðkomandi stofnun hefur verið til umræðu.

Mikil umræða er í gangi meðal íbúa Braunschweiger um hver þarna sé á ferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×