Erlent

Rafmagnsleysi veldur truflunum á ferðum Eurostar

Rafmagnsleysi í norðurhluta Frakklands hefur m.a. valdið miklum truflunum á ferðum Eurostar hraðlestarinnar sem gengur á milli Parísar og London.

Þúsundir manna eru strandaglópar beggja megin Ermasundsins vegna þess að allar tímaáætlanir Eurostar hafa farið úr skorðum. Fólk hefur þurft að nota aðrar hæggengari lestir og við það hefur ferðatíminn á milli stórborganna farið úr rúmum 2 tímum og upp í rúmlega 8 tíma.

Reiknað er með að þetta verði komið í lag um hádegisbilið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×