Erlent

Tólf látnir eftir snjóflóð í Kasmír

Frá Karakoram fjallgarðinum í Kasmír.
Frá Karakoram fjallgarðinum í Kasmír. mynd/AP
Að minnsta kosti 12 eru látnir eftir að snjóflóð féll á bækistöð pakistanska hersins í Karakoram fjallgarðinum í Kasmír fyrr í dag.

Rúmlega 100 hermenn grófust undir í flóðinu og þeirra nú leitað. Mikill viðbúnaður er á svæðinu og notast björgunarmenn við þyrlur og leitarhunda.

Skilyrði á svæðinu eru afar erfið. Þá hefur frostið farið niður fyrir mínus 70 gráður og er vindur mikill. Búðirnar standa í 6.300 metra hæð.

Indverjar og Pakistanar hafa lengi barist um yfirráð á svæðinu. Bæði löndin eru með mikinn mannafla á svæðinu - Pakistanar með rúmlega 2.500 og hermenn og Indverjar með um 5.000. Talið er að björgunaraðgerðir eigi eftir að standa yfir fram eftir degi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×