Erlent

Tugir fórust í fangaslagsmálum í Mexíkó

Að minnsta kosti 44 menn létu lífið í fjöldaslagsmálum sem brutust út í fangelsi í borginni Monterrey norðurhluta Mexíkó í gærkvöldi.

Fangaverðir segja að meðlimir tveggja glæpasamtaka hafi ráðist á hvern annan með grjóti og heimatilbúnum vopnum. Sumir þeirra sem létu lífið voru kyrktir.

Rannsókn er hafin á þessu máli og beinist hún m.a. að því hvort fangaverðir hafi opnað klefadyrnar sem aðskildu meðlimi þessara glæpasamtaka í fangelsinu. Glæpasamtökin sem hér um ræðir hafa barist lengi innbyrðis um yfirráðin yfir smygli á fíkniefnum til Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×