Erlent

Kennari lést og skólabörn slösuðust í rútuslysi

Breskur kennari lét lífið og tugur grunnskólanemenda hans liggur á sjúkrahúsi eftir rútuslys skammt frá borginni Reims í norðurhluta Frakklands í gærdag.

Hópurinn var á heimleið til Bretlands eftir skíðafrí á Ítalíu þegar rútan valt út af hraðbrautinni við borgina.

Bílstjóri rútunnar er í haldi frönsku lögreglunnar en talið að slysið hafi jafnvel orðið sökum þess að bílstjórinn sofnaði undir stýri.

Meðal þeirra slösuðu er 13 ára gömul stúlka en hún var flutt með þyrlu af slysstað og á gjörgæsludeild í París þar sem hún liggur nú þungt haldin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×