Erlent

John Glenn hélt upp á 50 ára geimferðarafmæli sitt

John Glenn fyrrum geimfari og öldungadeildarþingmaður hélt upp á 50 ára afmæli geimferðar sinnar hringinn í kringum jörðina með því að spjalla við geimfara í Alþjóðlegu geimstöðunni í gærkvöldi.

Glenn sem orðinn er 90 ára gamall og við hestaheilsu var fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem náði að fara hringferð um jörðina í geimfari og varð einnig elsti maðurinn sem ferðast hefur um í geimnum.

Í febrúar árið 1962 flaug Glenn geimfari sínu, Friendship 7, þrisvar í kringum jörðina á fimm tímum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×