Erlent

Sluppu úr fangelsi eftir fjöldaslagsmál sem kostuðu 44 lífið

Í ljós hefur komið að 30 föngum tókst að sleppa úr fangelsi í norðurhluta Mexíkó eftir að fjöldaslagsmál þar kostuðu 44 fanga lífið um síðustu helgi.

Þessir 30 fangar eru allir meðlimir Zeta glæpasamtakanna en flestir þeirra sem létu lífið tilheyra Gulf glæpasamtökunum. Þessi samtök hafa lengi barist innbyrðis.

Talið er að Zeta fangarnir hafi fengið aðstoð til að ganga á milli bols og höfuðs á andstæðingum sínum í fangelsinu. Búið er að handtaka fangelsisstjórann og 18 fangaverði vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×