Erlent

Strauss-Kahn handtekinn og yfirheyrður í Frakklandi

Franska lögreglan hefur handtekið Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Strauss-Kahn er í haldi á lögreglustöð í Lille þar sem verið er að yfirheyra hann í tengslum við rannsókn á vændiskvennahring. Lögreglan hefur þegar yfirheyrt nokkrar af vændiskonunum sem segja að þær hafi stundað kynlíf með Strauss-Kahn.

Sjálfur staðhæfir Strauss-Kahn að hann hafi ekki vitað að þetta væru vændiskonur, að því er segir í frétt á BBC um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×